Beint í efni

Það er að teiknast upp mjög kaldur vetur

Rætt er við Þorstein Víglundsson, formann SI, í Kastljósinu um byggingariðnað og stöðu efnahagsmála.

Þorsteinn

„Það er mjög augljóslega að teiknast upp mjög kaldur vetur. Sérstaklega þegar það kemur að íbúðamarkaði,“ segir Þorsteinn Víglundsson, formaður SI, meðal annars í Kastljósi þar sem Margrét Helga Erlingsdóttir ræðir er við hann og Eggert Þröst Þórarinsson, sérfræðing hjá Acro verðbréfum, um byggingariðnað og stöðu efnahagsmála.

Mistök hjá Seðlbankanum

Í máli Þorsteins kemur fram að hann telji að tvær síðustu ákvarðanir Seðlabankans hafi verið mistök. „Ég held að Seðlabankinn sé að gera hér mjög alvarleg mistök í hagstjórninni og auka verulega hér líkur á harðari lendingu heldur en þyrfti.“

Þorsteinn segir að ákvörðun um óbreytta stýrivexti nú og síðasta ákvörðun þar sem Seðlabankinn hækkaði stýrivexti hafi alvarleg áhrif á byggingariðnaðinn og efnahag landsins. Hann telur Seðlabankann ekki horfa nægilega langt fram í tímann. „Við allar kringumstæður á Seðlabankinn að vera að horfa á hagvaxtarþróun og verðbólguþróun 12 til 24 mánuði fram í tímann og bankinn er einfaldlega ekki að gera það. Hann er að horfa mjög þröngt á skammtímastöðu.“

Háir vextir farnir að bíta óheyrilega mikið

Þá kemur fram í viðtalinu við Þorstein að hann telur stærsta vandamálið á íbúðamarkaði í dag einfaldlega vera mjög hátt vaxtastig og þar af leiðandi sé mjög lítil hreyfing, sérstaklega á nýju húsnæði. „Þessir háu vextir eru farnir að bíta óheyrilega mikið.“ Í máli hans kemur fram að fyrirtæki í byggingariðnaði séu að bregðast við með því að hagræða, skera niður kostnað og fækka starfsfólki.

Kastljós
Margrét Helga Erlingsdóttir, Eggert Þröstur Þórarinsson og Þorsteinn Víglundsson.

Á vef RÚV er hægt að nálgast viðtalið í heild.

Kastljós á RÚV, 18. nóvember 2026.