Fréttasafn



5. apr. 2022 Almennar fréttir Ár grænnar iðnbyltingar Orka og umhverfi

Ársfundur Grænvangs

Samstíga í árangusríkri loftslagsvegferð - þáttur atvinnulífsins í orkuskiptum Íslands er yfirskrift ársfundar Grænvangs, samstarfsvettvangs atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir, sem verður haldinn þriðjudaginn 5. apríl kl. 14-16 á Grand Hótel Reykjavík (Háteigur). Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn.

Árangri í loftslagsmálum verður einungis náð með samhentu átaki samfélagsins í heild, þ.e. samvinnu atvinnulífs, stjórnvalda og almennings. Með samvinnu má tryggja að markmiðum verði náð og samhliða stuðlað að aukinni samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja á alþjóðamörkuðum til lengri tíma litið.

Fundarstjóri er Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI.

Dagskrá

  • Fundarstjórn Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI.
  • Opnunarávarp Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-,orku- og loftslagsmálaráðherra
  • Ávarp Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI og stjórnarformaður Grænvangs
  • Pallborðsumræður - Hvernig verður kolefnishlutlaust Ísland? Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jón Ásgeirsson, HS Orka, Kristín Linda Árnadóttir, Landsvirkjun, og Steinunn Dögg Steinsen, Norðurál
  • Pallborðsumræður - Forskot Íslands í átt að jarðefnaeldsneytisleysi Berglind Rán Ólafsdóttir, ON, Bogi Nils Bogason, Icelandair, Guðmundur Kristjánsson, Brim og Halla Hrund Logadóttir, Orkustofnun
  • Ávarp Birta Kristín Helgadóttir
  • Lokaorð fundarstjóra

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.