Beint í efni

Styrkja þarf tengsl háskóla og atvinnulífs til að styðja við vöxt tækni- og hug­verka­iðn­aðar

Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Nox Medical og formaður Tækni- og hugverkaráðs SI, flutti erindi á ársráðstefnu IAQA, Gæðaráðs háskóla, sem haldin var í Háskólanum á Akureyri 2. september. Rektorar allra háskóla landsins voru saman komnir á ráðstefnunni, auk fulltrúa menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og annarra hagaðila. Logi Einarsson ráðherra leit jafnframt við undir lok dags. 

Erindi Huldu bar yfirskriftina Bridging Academia and Industry: Skills for Iceland's Knowledge-Driven Future og fjallaði um mikilvægi þess að styrkja tengsl háskóla og atvinnulífs til að styðja við áframhaldandi vöxt tækni- og hugverkaiðnaðar á Íslandi. Hún lagði áherslu á að til að nýta vaxtartækifæri greinarinnar þurfi háskólar, fyrirtæki og stjórnvöld að vinna enn betur saman. 

Fólk, þekking og nýsköpun eru forsendur vaxtar 

Í erindinu fjallaði Hulda um þann öfluga tækni- og hugverkaiðnað sem byggst hefur upp hér á landi og þær forsendur sem þurfa að vera til staðar svo hann geti haldið áfram að vaxa. Þar skipti mannauður, þekking og nýsköpun sköpum. 

Tækni- og hugverkaiðnaður er orðinn ein af meginstoðum íslensks efnahagslífs. Útflutningstekjur greinarinnar námu 369 milljörðum króna árið 2025, yfir 18 þúsund manns starfa í greininni og verðmætasköpun hennar nemur um 440 milljörðum króna. 

Hulda lagði áherslu á að til að nýta frekari vaxtartækifæri þyrfti að byggja enn sterkari brú milli háskóla og atvinnulífs. Skortur á fólki með rétta sérþekkingu er þegar farinn að hamla vexti fyrirtækja. Niðurstöður greininga sýna að 77% fyrirtækja í greininni búast við að fjölga starfsfólki en 63% telja að menntakerfið muni ekki mæta þörfum þeirra.

Sterkari tenging háskólanáms og atvinnulífs 

Hulda kallaði eftir því að nemendur fengju aukin tækifæri til að öðlast hagnýta reynslu í námi og vinna að raunverulegum verkefnum í samstarfi við fyrirtæki. Meðal hugmynda sem hún kynnti var að þróa 30–60 ECTS vinnustaðatengdar námsleiðir í tækni- og hugverkagreinum, með sameiginlegri leiðsögn háskóla og fyrirtækja. „Fyrirtækin eru tilbúin – eru háskólarnir tilbúnir?“ spurði Hulda viðstadda. Viðbrögðin voru jákvæð og kom fram áhugi á að þróa tilraunaverkefni með þátttöku allra háskóla landsins. Unnið verður áfram að mótun og útfærslu verkefnisins á næstu vikum. 

Jafnframt kom fram að efla þurfi samstarf um rannsóknir og nýsköpun, tengja meistara- og doktorsverkefni í auknum mæli við áskoranir atvinnulífsins og greiða leið rannsókna og þekkingar yfir í nýsköpun og verðmætasköpun. 

Háskólar, fyrirtæki og stjórnvöld vinni saman 

Yfirskrift ársráðstefnunnar var From Strategy to Impact: Universities, Societal Engagement and Continuous Improvement. Þar var sjónum beint að samfélagslegu hlutverki háskóla og því hvernig þeir geta breytt stefnumarkandi markmiðum í raunverulegan og mælanlegan árangur. 

Hulda tók jafnframt þátt í pallborðsumræðum ásamt fulltrúum íslenskra háskóla og vinnumarkaðarins. Þar lagði hún áherslu á að stjórnvöld, háskólar og fyrirtæki þurfi að vinna saman að því að byggja upp þekkingu og færni til framtíðar og skapa þannig forsendur fyrir aukinni nýsköpun og hagvexti. Til þess þurfi einnig fyrirsjáanlegt starfsumhverfi, tryggt fjármagn og skýra stefnu til lengri tíma. 

Í máli hennar kom fram að öflug tengsl menntakerfis og atvinnulífs væru mikilvæg forsenda þess að íslensk fyrirtæki hafi aðgang að þeirri þekkingu og færni sem þarf til nýsköpunar og verðmætasköpunar. Háskólar byggi upp þekkingu og mannauð, fyrirtæki nýti þekkinguna til að skapa vörur og þjónustu sem geti keppt á alþjóðamörkuðum og stjórnvöld skapi umgjörð fyrir rannsóknir, fjárfestingu og nýsköpun. 

Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Nox Medical og formaður Tækni- og hugverkaráðs SI.