Fréttasafn



6. maí 2015 Iðnaður og hugverk

Bakarar selja brjóstabollur um mæðradagshelgina

Félagsmenn í Landssambandi bakarameistara, LABAK, efna til sölu á brjóstabollum í bakaríum um allt land um mæðradagshelgina, dagana 8.-10. maí. Bollusalan er til stuðnings styrktarfélaginu Göngum saman sem styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og úthlutar styrkjum í október ár hvert. Þetta er í fimmta sinn sem Landssamband bakarameistara styrkir Göngum saman með þessum hætti og hafa hingað til alls safnast hátt í fimm milljónir króna sem hafa runnið óskiptar til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini.

Brjóstabollan í ár er gómsæt rjómabolla með berjafyllingu. Í tilefni verkefnisins verða búðir félagsmanna skreyttar með bleikum blöðrum og veggspjöldum um mæðradagshelgina.

Styrktarfélagið Göngum saman leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar til heilsueflingar. Félagið efnir til vorgöngu fyrir alla fjölskylduna víða um land á mæðradaginn, sunnudaginn 10. maí. Allar göngur hefjast kl. 11 og nánari upplýsingar um hvern stað er að finna á vefnum www.gongumsaman.is .

Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að bjóða starfsmönnum upp á bollur með kaffinu á föstudag og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt í mæðradagsgöngum og gæða sér á brjóstabollum um helgina.  

Eftirtalin bakarí selja brjóstabollur um mæðradagshelgina:

  • Almar bakari, Hveragerði, Selfossi og Þorlákshöfn
  • Bakarameistarinn, Kópavogi og Reykjavík
  • Bakarinn, Ísafirði
  • Bakstur og veisla, Vestmannaeyjum
  • Bernhöftsbakarí, Reykjavík
  • Björnsbakarí, Seltjarnarnesi og Reykjavík
  • Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co., Akureyri
  • Brauðgerð Ólafsvíkur, Ólafsvík
  • Gamla Bakaríið, Ísafirði
  • Geirabakarí hf., Borgarnesi
  • Guðnabakarí, Selfossi
  • Hjá Jóa Fel. Brauð og kökulist, Reykjavík, Kópvogi og Garðabæ
  • Hérastubbur, Grindavík
  • Kökuhornið/Lindabakarí ehf., Kópvogi
  • Kökuval, Hellu
  • Mosfellsbakarí, Mosfellsbæ og Reykjavík
  • Okkar bakarí, Garðabæ
  • Reynir bakari, Kópvogi
  • Sigurjónsbakarí, Reykjanesbæ
  • Sveinsbakarí, Reykjavík
  • Valgeirsbakarí, Reykjanesbæ