Það voru hárrétt viðbrögð ríkisstjórnarinnar að kalla sendiherra Bandaríkjanna á fund og mótmæla þessu harðlega og engin ástæða til að vera með einhverja dramatík meira út af því. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, meðal annars í hlaðvarpsþættinum Chess After Dark þar sem rætt er við hann og Hörð Ægisson, ritstjóra Innherja. Í þættinum er farið yfir fréttir vikunnar, eftirmálar þjóðaratkvæðagreiðslunnar, EES-samninginn, fjárlög 2027 og fleira.
Sigurður segir að halda eigi áfram að efla samskiptin bæði austur og vestur og minnir á að Bandaríkin séu fyrir utan að vera mikilvægt markaðssvæði fyrir íslenskar vörur og þjónustu framarlega í heiminum í á ýmsum sviðum, til að mynda í tækniþróun. Hann segir það skapa mikil tækifæri í atvinnuuppbyggingu og verðmætasköpun á mörgum sviðum. „Þannig að við hjá Samtökum iðnaðarins höfum talað mjög fyrir því að Ísland efli samstarf við Bandaríkin á þessu sviði. Við höfum talað fyrir því að það verði kannaður möguleikinn á því að leggja gagnatengingu á milli Bandaríkjanna og Íslands til þess að geta elt og sótt fleiri tækifæri á sviði gervigreindar og og þeirrar tækni sem er að verða til.“ Hann segir að í Evrópulöndum og Norðurlöndunum sjáist hvernig stjórnvöld í þeim ríkjum hafa tekið höndum saman með atvinnulífinu við það að sækja tækifærin og það eigum við að gera líka. Sigurður segir að þar séu Bandaríkin lykilaðili en að einhverjir hafi misskilið þessi skilaboð og talið að þetta snúist um úthlutun á orku til Bandaríkjanna með raforkustreng. Hann segist vilja nota tækifærið til að leiðrétta það og taka af öll tvímæli um að svo sé ekki.
Á Spotify er hægt að hlusta á þáttinn.
Chess After Dark, 9. september 2026.



