Fréttasafn



9. mar. 2021 Almennar fréttir Mannvirki Orka og umhverfi

Byggjum grænni framtíð með fimm rafrænar vinnustofur

Á næstu tveimur vikum verða haldnar fimm opnar vinnustofur á Teams á vegum verkefnisins Byggjum grænni framtíð sem Samtök iðnaðarins eru aðili að. Til umræðu verða aðgerðir sem eiga að efla vistvæna mannvirkjagerð til ársins 2030. Skráning á vinnustofurnar fer fram hér.

Vinnustofurnar munu fjalla um skipulag og hönnun vistvænni mannvirkja, vistvæn byggingarefni, orkuskipti á vinnuvélum, nýtingartíma mannvirkja og hringrásarhagkerfi mannvirkjageirans.

Alla hagaðilar húsnæðis- og mannvirkjageirans eru hvattir til að taka virkan þátt og koma á framfæri sínum sjónarmiðum og þekkingu til verkefnisins. Þessi vinna mun móta aðgerðir greinarinnar í loftlagsmálum og þurfa því að vera raunhæfar.

Byggjum grænni framtíð er samstarfsverkefni stjórnvalda og atvinnulífsins, sem byggir á aðgerð C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Á vegum verkefnisins starfa sex hópar sem skipaðir eru rúmlega 30 sérfræðingum víðsvegar úr virðiskeðju byggingargeirans. Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast á byggjumgraenniframtid.is.