Beint í efni

Jóhanna Klara lætur af störfum hjá SI

Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins, lætur á næstu vikum af störfum hjá Samtökum iðnaðarins eftir tólf ára farsælt starf. Á þeim tíma hefur hún sett mark sitt á starfsemi samtakanna og lagt sín lóð á vogarskálarnar í hagsmunagæslu byggingar- og mannvirkjaiðnaðar.

Samtök iðnaðarins þakka Jóhönnu Klöru fyrir hennar ríkulega framlag til samtakanna, félagsmanna og til íslensks iðnaðar. Henni eru færðar bestu óskir um gott gengi í því sem tekur við.