Fréttasafn



17. jan. 2017 Almennar fréttir Menntun

Fjölbreytt dagskrá á Menntadegi atvinnulífsins

Menntadagur atvinnulífsins 2017 verður haldinn fimmtudaginn 2. febrúar  á Hilton Reykjavík Nordica. Þetta er í fjórða skipti sem menntadagur atvinnulífsins er haldinn en hann er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins. 

DAGSKRÁ KL. 8.30-10.15 

  • Íslensk máltækni og atvinnulífið - Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
  • Ávarp menntamálaráðherra - Kristján Þór Júlíusson
  • Íslenska í stafrænum heimi - Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor við Háskóla Íslands
  • Áhrif máltækni á rekstur og þjónustu fyrirtækja - Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Símanum
  • Á íslensku má alltaf finna svar - Þórarinn Eldjárn, rithöfundur og skáld
  • Að tala íslensku við tölvur - Jón Guðnason, lektor við Háskólann í Reykjavík
  • Málið og atvinnulífið - Guðfinna S. Bjarnadóttir
  • Menntaverðlaun atvinnulífsins 2017. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir Menntaverðlaun atvinnulífsins. Menntafyrirtæki ársins 2017 verður valið ásamt Menntasprota ársins.


Að lokinni sameiginlegri dagskrá verður boðið upp á kaffi og með því. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á Menntatorgi.

Eftir kaffihlé verður boðið upp á þrjár áhugaverðar málstofur.

MÁLSTOFUR KL. 10.45-12.15

FAGHÁSKÓLINN

  • Jakobína Hólmfríður Árnadóttir, ráðgjafi hjá Capacent
  • Runólfur Ágústsson, ráðgjafi mennta og menningarmálaráðuneytis
  • Sólveig Lilja Snæbjörnsdóttir, fagstjóri VR
  • Pallborðsumræður - auk frummælenda taka þátt Jón B. Stefánsson, skólameistari Tækniskólans, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, og Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ

Fundarstjóri er Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA

TÆKNIÞRÓUN OG BREYTTAR ÁHERSLUR Í MENNTAMÁLUM

  • Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, námssálfræðingur hjá Tröppu
  • Ingvi Hrannar Ómarsson, Grunnskólum Skagafjarðar
  • Ingvi Ásgeirsson og Trausti Björn Ríkharðsson hjá BL
  • Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja
  • Sólrún Kristjánsdóttir, starfsmannastjóri Orkuveitu Reykjavíkur
  • Pallborðsumræður, auk frummælenda taka þátt Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og Haukur Harðarson, sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins 

Fundarstjóri er Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins.

HÆFNI, FRÆÐSLA OG ARÐSEMI Í FERÐAÞJÓNUSTU

  • Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
  • David Allen, framkvæmdastjóri Fólks í fyrirrúmi (e. People 1st), Skotlandi
  • María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
  • Pallborðsumræður þar sem þátt taka Óskar Jósefsson, framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála, Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri Nordic Visitor, Erla Ósk Ásgeirsdóttir, forstöðumaður starfsmanna -og gæðasviðs Icelandair hótela, og Sigríður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Landsnámssetursins í Borgarnesi

Fundarstjóri er Óskar Finnsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Íslandshótela.

Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér