Framkvæmdastjóri State of Green á ársfundi Grænvangs
Ársfundur Grænvangs fer fram þriðjudaginn 21. mars kl. 13 í Grósku. Á fundinum verður horft til ársins 2040 þegar Ísland á að vera kolefnishlutlaust og verður skoðað hvaða áhrif það muni hafa á samfélag, umhverfi og atvinnulíf.
Finn Mortensen, framkvæmdastjóri State of Green í Danmörku, er sérstakur gestur fundarins þar sem hann mun fjalla um hvernig stjórnvöld og atvinnulíf hafa mótað sýn um kolefnishlutlausa Danmörk og lykillausnir. State of Green hefur verið leiðandi afl í að vekja athygli á framlagi Danmerkur í loftslagsmálum og tækifærum þar í landi.
Hér er hægt að skrá sig á ársfundinn.
Dagskrá
Ávörp
- Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
- Sigurður Hannesson, formaður Grænvangs og framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
Að horfa fram á veginn - reynsla Danmerkur
- Finn Mortensen, framkvæmdastjóri State of Green í Danmörku.
Tækifærin í kolefnishlutlausum heimi
- Álfheiður Ágústsdóttir, Elkem á Íslandi
- Benedikt Gíslason, Arion banki
- Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra
- Kristín Linda Árnadóttir, Landsvirkjun
- Þór Sigfússon, Reykjanesklasinn
Ný hugsun - ný nálgun?
- Heiða Njóla Guðbrandsdóttir, Icelandair
- Maríanna Magnúsdóttir, Landsnet
- Reynir Sævarsson, EFLA
- Sveinn Margeirsson, Brim
Ávarp
- Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra
Fundarstjóri
- Nótt Thorberg, Grænvangi