Fréttasafn



11. maí 2022 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Full ástæða til að lækka fasteignagjöld

Í frétt Innherja á Vísi kemur fram að Samtök iðnaðarins fagni hugmynd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um að frysta fasteignaskatta enda hafi ör hækkun fasteignaskatt á atvinnuhúsnæði verið langt umfram verðmætasköpun hagkerfisins. „Það er full ástæða fyrir Reykjavíkurborg að lækka fasteignagjöld því borgin er með hæstu skattprósentu af öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í frétt Innherja.

Létta undir hjá heimilum og fyrirtækjum með lækkun fasteignaskatta

Í fréttinni kemur fram að á undanförnum tólf mánuðum hafi fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað 22,5% og verið helsti drifkraftur aukinnar verðbólgu. Innheimtir fasteignaskattar hafi numið ríflega 22 milljörðum króna árið 2021, og hafi þá hækkað um tæplega 38% á kjörtímabilinu. Samkvæmt fjárhagsáætlun borgarinnar sé gert ráð fyrir annarri eins hækkun á komandi kjörtímabili og að þeir verði samtals um 28,8 milljarðar króna á árinu 2026. „Þessi öra hækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði hefur verið langt umfram verðmætasköpun hagkerfisins. Með því að draga úr þessari skattheimtu væri verið að létta undir hjá heimilum og fyrirtækjum. Það er vel þess virði að skoða það að láta krónutölu gjaldanna standa í stað og aðlaga prósentuna sem verður til þess að ef húsnæðisverð heldur áfram að hækka þá mun prósentan lækka.“

Skattprósenta lækkað í Kópavogi og Hafnarfirði en ekki í Reykjavíkurborg

Þá kemur fram í Innherja að Sigurður bendi á að skattprósenta borgarinnar hafi ekki verið lækkuð ólíkt því sem sum nágrannasveitarfélögin hafa gert og megi þar nefna Kópavog og Hafnarfjörð. Frá árinu 2017 hafi sveitarstjórn Kópavogs lækkað álagningarprósentuna úr 1,62% í 1,44% eða um 0,18 prósentustig í heildina. Einnig hafi Hafnarfjörður á sama tíma lækkað sína álagningarprósentu úr 1,65% í 1,4% eða um 0,25 prósentur.

Hærri fasteignaskattar á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum

Í fréttinni kemur fram að vegna hárrar álagningarprósentu ásamt háu fasteignaverði og magni atvinnuhúsnæðis sé Reykjavík með yfir helming heildartekna af fasteignasköttum á atvinnuhúsæði á landinu. Það þýði að ríflega önnur hver króna sem innheimt sé af fasteignasköttum á landsvísu rennur í borgarsjóð. Sigurður bendir á í frétt Innherja að fasteignaskattar á Íslandi séu háir í samanburði við hin Norðurlöndin. Hér á landi séu fasteignaskattar um 0,9% af landsframleiðslu samanborið við 0,2% í Noregi og um 0,4% í Finnland og Svíþjóð svo dæmi séu tekin.

Innherji á Vísi, 9. maí 2022.