Fréttasafn



1. nóv. 2023 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Fundur HMS fyrir mannvirkjahönnuði

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, býður mannvirkjahönnuðum landsins á fund vegna verkefnisins „Eitt viðmót fyrir stafræn hönnunargögn og byggingarleyfisumsóknir“ í hádeginu fimmtudaginn 9. nóvember frá 11.30-12.45 í beinu streymi á Teams.

Dagskrá

  • Fundarstjóri er Kjartan Kjartansson, teymisstjóri Mannvirkjaskrár
  • Hermann Jónasson, forstjóri HMS opnar fundinn

Ný tækifæri fyrir hönnuði – Stafræn byggingarleyfi

  • Hugrún Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri Mannvirkjaskrár
  • Baldur Kristjánsson, ráðgjafi Kolibri
  • Anna Signý Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Kolibri

Bylting í stafrænu umhverfi mannvirkjaiðnaðar – Einn ferill leyfismála

  • Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.