12. okt. 2020 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Starfsumhverfi

Fundur í kjölfar dóms Evrópudómstólsins - Schrems II

Rafrænn fundur verður haldinn fyrir félagsmenn SI um nauðsynlegar aðgerðir í kjölfar dóms Evrópudómstólsins - Schrems II þriðjudaginn 20. október kl. 9.00-10.00.

Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður á LEX lögmannsstofu og sérfræðingur í hugverka- og tæknirétti, mun halda fyrirlestur um áhrif nýfallins dóms Evrópudómstólsins, Schrems II, sem varðar lögmæti miðlunar Facebook á persónuupplýsingum frá netþjónum á Írlandi til Bandaríkjanna. Ljóst er að skapast hefur talsverð óvissa í kjölfar dómsins hvað varðar miðlun persónuupplýsinga til Bandaríkjanna, m.a. fyrir tilstilli skýjalausna. Fundarstjóri verður Steinunn Pálmadóttir, lögfræðingur hjá SI.

Að fyrirlestrinum loknum verður opnað fyrir fyrirspurnir.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn og fá þeir sem skrá sig sendan Zoom-hlekk fyrir fundinn.


Fáum við leyfi þitt til að nota Google Analytics til að safna nafnlausum upplýsingum um notkun þína á þessum vef?

Sjáðu nánar á persónuverndarsíðu okkar hvaða áhrif svar þitt hefur.