Beint í efni

Rík­is­stjórn­in hækkar skatta á bygg­ing­ar­iðn­að þegar er kólnun í sölu nýrra íbúða

„Þetta er bara til merkis um þá kólnun sem að hefur verið í sölu á íbúðum og kannski ekki síst sölu á nýjum íbúðum,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, í fréttum Sýnar um þær staðreyndir að fjórar af hverjum fimm íbúðum seldust undir auglýstu verði í júlí, leyfum fyrir ný íbúðarhús hefur fækkað um helming frá árunum 2021 til 2023, atvinnulausum í byggingariðnaði hefur fjölgað um 27 prósent og vanskil greinarinnar aukist hratt. Hann segir verktaka lækka verð til að koma íbúðum í sölu og losna undan háum vaxtakostnaði.

Skattahækkun á byggingariðnaðinn

Þá segir Ingólfur um áform ríkisstjórnarinnar að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarbyggingar úr 35% í 20% að það feli í sér skattahækkun á byggingariðnaðinn sem komi ofan á samdrátt vegna hárra vaxta. „Þetta náttúrulega hækkar skattbyrði á greinina og gerir það að verkum að það verður þá minni uppbygging fyrir vikið.“

Ingólfur varar við að samdráttur í nýjum verkefnum leiði til húsnæðisskorts þegar eftirspurn tekur aftur við sér og að það geti hækkað íbúðaverð, aukið verðbólgu og haldið vöxtum hærri. „Og ef að það sé ekki gert þá er afleiðingin bara sú að við sjáum það í hækkun á húsnæðisverði og sem slær þá út í aukinni verðbólgu og hærri vöxtum þannig að við lendum þá í þessum vítahring aftur.“

Vísir, 10. september 2026.