Fréttasafn



21. jan. 2016 Almennar fréttir

Guðrún Hafsteinsdóttir tilnefnd til setu í stjórn Lífeyrissjóðs Verslunarmanna

Stjórn SI samþykkir nýjar starfsreglur

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, hefur verið tilnefnd til setu í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna og mun taka sæti þar í mars. Tilnefningin er til næstu þriggja ára eins og reglur sjóðsins kveða á um. Helgi Magnússon ákvað fyrir nokkru síðan að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn lífeyrissjóðsins. 

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í mars á síðasta ári fólu félagsmenn stjórn að setja sér starfsreglur. Síðustu mánuði hefur stjórnin unnið að því og voru starfsreglur stjórnar samþykktar á stjórnarfundi nú í janúar. Þar er skýrt kveðið á um allar tilnefningar samtakanna í hinar ýmsu stjórnir. Sérstök valnefnd skal leggja fram tillögu til stjórnar um tilnefningar í stjórnir lífeyrissjóða. Sett er 6 ára hámark á setu stjórnarmanna SI í lífeyrissjóðum sem er í samræmi við hámarkssetutíma í stjórn SI og er einnig í samræmi við reglur SA um sama efni.

Guðrún Hafsteinsdóttir er fjórði forystumaður iðnaðarins sem tekur sæti í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Davíð Sch. Thorsteinsson og Víglundur Þorsteinsson áttu sæti í stjórn sjóðsins um árabil og Helgi Magnússon hefur setið í stjórninni sl. 9 ár.