Fréttasafn



9. sep. 2022 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Landssamband bakarameistara

Heimsþing bakara og kökugerðarmanna haldið á Íslandi

Alþjóðasamtök bakara og kökugerðarmanna, UIBC – International Union of Bakers and Confectioners, halda heimsþing sitt á Íslandi og er um að ræða stærsta viðburð sem haldinn hefur verið í bakarastéttinni á Íslandi. Landssamband bakarameistara er þátttakandi í heimsþinginu.

Hluti af heimsþinginu auk fundarhalda verða heimsóknir í íslensk bakarí og fagskólann í Kópavogi. Á morgun laugardaginn 10. september verður efnt til galadinners á Grand Hótel þar sem heimsins bestu fagmenn verða heiðraðir. Tilkynnt verður um val á bakara ársins (UIBC World Baker of the Year 2022) og kökugerðarmanni ársins (UIBC World Confectioner of the Year 2022) sem eru æðstu viðurkenningar sem bökurum og kökugerðarmönnum getur hlotnast í heiminum.

Innan alþjóðasamtakanna eru 300.000 bakarí og kökugerðir í 5 heimsálfum. Samtökin voru stofnuð 1931 í Búdapest í Ungverjalandi. Samtökin standa að fjölmörgum heimsmeistaramótum líkt og heimsmeistaramóti ungra bakara, heimsmeistaramóti ungra konditora, heimsmeistaramóti bakarameistara og heimsmeistaramóti konditormeistara. Auk þess veita samtökin framúrskarandi fagfólki viðurkenningar. 

Á myndinni hér fyrir ofan er stjórn Landssambands bakarameistara, talið frá vinstri, Sigurjón Héðinsson, Sigurbjörg Sigþórsdóttir, Alfreð Freyr Karlsson, Sigurður Már Guðjónsson, formaður, Vilhjálmur Þorláksson og Almar Þór Þorgeirsson.