Fréttasafn



18. mar. 2015 Iðnaður og hugverk

Hilmar Veigar Pétursson kjörinn stjórnarformaður IGI

Á aðalfundi IGI, sem er starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins, var kosin ný og öflug stjórn sem mun fara með málefni leikjaframleiðenda á þessu ári.

Nýja stjórn skipa: Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP, Ólafur Andri Ragnarsson stjórnarmaður Betware, Burkni Óskarsson framkvæmdastjóri Lumenox, Eldar Ástþórsson fjölmiðlafulltrúi CCP, Stefán Álfsson forstjóri Jivaro, Stefán Gunnarsson forstjóri Soldid Clouds og Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir forstjóri Locatify.

Alls eru fyrirtæki innan IGI 10 talsins og velta þeirra yfir 9 milljarðar á ári.

Spurður um áherslumál IGI á þessu ári segir Hilmar Veigar Pétursson, nýkjörinn formaður IGI og forstjóri CCP, leikjaframleiðsluiðnaðinn ekki flokkast sem dæmigerðan iðnað. ,,Veltutölur iðnaðarins eru háar en fyrirtækin fá. En þar með er ekki öll sagan sögð“ segir Hilmar og bætir því við að skortur á hæfu starfsfólki hamli vexti greinarinnar. ,,Ef þetta fólk er ekki til hér, þá verðum við að fá það erlendis frá. Af þessu verður útlendingalöggjöfin að taka mið og bjóða upp á hraðari afgreiðslu leyfanna. Við þurfum að stuðla að því að gera Ísland aðlaðandi fyrir þessa erlendu sérfræðinga og þar skipta skattaafslættir fyrstu starfsárin miklu máli eins og Danir hafa verið að gera með góðum árangri.“

Fráfarandi stjórnarformaður IGI, Ólafur Andri Ragnarsson, situr áfram í stjórn. Ólafur hefur unnið ötullega að hagsmunum IGI síðustu árin og þekkir vel þær áskoranir sem leikjaiðnaðurinn stendur frammi fyrir. „Samtal okkar við önnur fyrirtæki, fjárfesta og stjórnvöld miða að því að útskýra tækifærin en ekki síður áskoranirnar. Öll fyrirtæki innan IGI eru í útflutningi og lokað hagkerfi gerir okkur erfitt fyrir. Við þurfum að skapa tækifæri fyrir fyrirtækin til að vaxa og halda þeim í landinu. Við erum einnig að keppa í alþjóðaumhverfi um starfsfólk sem á mjög auðvelt með að flytjast þangað sem spennandi störf bjóðast,“ segir Ólafur.

Margföldunaráhrif fyrirtækja á borð við CCP eru talsverð fyrir hagkerfið í heild sinni. CCP stendur fyrir EVE Fanfest hátíðinni þann 19. – 21. mars næstkomandi. Von er á 1.500 erlendum gestum á hátíðina. Hátt í 100 athygliverðir dagskárliðir eru í boði og það má áætla að hundruðir þúsunda horfi á beina útsendingu frá hátíðinni.