Fréttasafn



7. sep. 2023 Almennar fréttir Efnahagsmál Innviðir Mannvirki

Húsnæðismál eru lífskjaramál segja framkvæmdastjórar SI og SA

Þak yfir höfuðið er grundvallarþörf hvers einstaklings, hverrar fjölskyldu. Húsnæðismál eru lífskjaramál af þeirri einföldu ástæðu að húsnæðiskostnaður er stærsti útgjaldaliður heimilanna. Hlutfall húsnæðiskostnaðar í útgjöldum hefur hækkað um helming frá síðustu aldamótum og íbúðaverð hefur hækkað um meira en helming að nafnverði á innan við þremur árum. Þetta segja Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, í grein í Morgunblaðinu.

Rót vandans of fáar íbúðir

Þau segja að tölurnar tali sínu máli og áskoranirnar blasi við í húsnæðismálum. Rót vandans sé sú að á Íslandi séu of fáar íbúðir miðað við þarfir og fjölda landsmanna. Lausnin felist í því að byggja fleiri íbúðir til að koma jafnvægi á markaðinn. Ríkið sé þar í forystuhlutverki en sveitarfélögin hafi mikið um það að segja hve margar íbúðir séu byggðar með áherslum sínum í skipulagsmálum og framboði byggingarhæfra lóða.

Óviðunandi ástand

Þá kemur fram í grein þeirra að framboðsvandinn eigi sér ýmsar birtingarmyndir. Í fyrsta lagi hafi íbúðaverð sjaldan mælst hærra eftir miklar hækkanir síðustu ára sem geri fólki erfiðara um vik að komast inn á markaðinn. Í öðru lagi hafi þessar hækkanir leitt til verðbólgu og hærri vaxta sem hækki bæði greiðslubyrði húsnæðislána og dragi úr uppbyggingu nýrra íbúða. Í þriðja lagi séu þau sem hafi lægstu tekjurnar líklegri til þess að vera á leigumarkaði, líklegri til þess að greiða allt of hátt hlutfall af ráðstöfunartekjum í húsnæðiskostnað. Þetta ástand sé óviðunandi.

Byggingarátak er nauðsynlegt

Sigurður og Sigríður segja að áform innviðaráðherra um húsnæðisstefnu stjórnvalda og aðgerðaáætlun sé fagnaðarefni og margt í stefnunni rími vel við þær lausnir á íbúðaskorti sem Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins hafi lagt til undanfarin ár. Í stefnunni séu birtar tillögur að aðgerðum svo hægt sé að byggja meira, hraðar og hagkvæmar. Þar megi nefna bættar upplýsingar um stöðu markaðarins, aukið framboð á byggingarhæfum lóðum og skilvirkari stjórnsýslu og eftirlit. En þau segja jafnframt að að blasi við að byggingarátak sé nauðsynlegt til að mæta uppsafnaðri þörf. Slíkt átak krefjist samvinnu ríkis, sveitarfélaga og fyrirtækja í greininni. „Eitt er víst, byggingariðnaðurinn mun ekki láta sitt eftir liggja. Forsenda uppbyggingar er framboð á byggingarhæfum lóðum sem hefur verið of lítið, áherslur sveitarfélaga í skipulagsmálum til hagkvæmrar uppbyggingar og skilvirk stjórnsýsla sveitarfélaga auk fjármögnunar á ásættanlegum kjörum.“

Byggja í takti við þarfir landsmanna

Í niðurlagi greinarinnar segja þau Sigurður og Sigríður að húsnæðismarkaðurinn sé eitt mikilvægasta púslið í stóru efnahagsmyndinni. Vandinn á húsnæðismarkaði verði ekki leystur með því að benda fingrum hvert á annað. „Við leysum hann með því að byggja meira, hraðar og hagkvæmar, í takt við þarfir landsmanna. Við leysum hann með því að ná niður verðbólgu og þar með vaxtakostnaði. Við þurfum jafnframt að halda áfram að styðja við þá tekjulægstu og eignaminnstu í samfélaginu á hnitmiðaðan hátt, á sama tíma og við aukum framboð í takt við þarfir landsmanna. Þetta gerist ekki nema að ríki, sveitarfélög og fyrirtækin gangi í takt. Fyrirtækin eru sannarlega reiðubúin til uppbyggingar.“

Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.

Morgunblaðið, 7. september 2023. 

Morgunbladid-07-09-2023_2