Beint í efni

Öflugir innviðir forsenda hagsældar og sam­keppn­is­hæfni

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, hrósaði ríkisstjórninni fyrir áherslu sína á innviðauppbyggingu á kynningar- og markaðsdegi innviðafélagsins Göng og brú sem fór fram í Hörpu.

Á kynningar- og markaðsdegi innviðafélagsins Göng og brú sem fór fram í Hörpu í gær fjallaði Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í erindi sínu Infrastructure, prosperity and competitiveness um stöðu innviða á Íslandi, viðhaldsþörf, fjárfestingu í vegakerfinu og mikilvægi þess að skapa skilyrði fyrir fjölbreyttari leiðir við uppbyggingu samgöngumannvirkja.

Sigurður hrósaði ríkisstjórninni fyrir áherslu sína á innviðauppbyggingu og fagnaði stofnun innviðafélagsins. Hann sagði að nýjar leiðir þyrfti til að hraða uppbyggingu innviða og tryggja betur fyrirsjáanleika, enda væru öflugir innviðir ein af grunnforsendum framleiðni, samkeppnishæfni og lífsgæða.  Í máli Sigurðar kom fram að uppsöfnuð viðhaldsskuld innviða hér á landi væri 680 milljarðar króna og hafi aukist, sérstaklega í vegakerfinu. Á sama tíma væri mikil þörf fyrir nýfjárfestingu í samgöngum.  

Sigurður dró fram helstu væntingar iðnaðarins til uppbyggingar vegakerfisins. Þar væru lykilatriði meiri fyrirsjáanleiki og framkvæmdahraði, að tekjur skili sér til vegakerfisins, samanburður á ólíkum framkvæmdaleiðum, fagleg stjórnun og skýr verkaskipting. Jafnframt væri mikill vilji meðal stjórnvalda, fjárfesta, verktaka, hönnuða og ráðgjafa til fjölbreyttari uppbyggingar vegakerfisins.

Myndir/Ernir Eyjólfsson