Fréttasafn



22. sep. 2023 Almennar fréttir Menntun

Hvatningarsjóður Kviku úthlutar styrkjum til nema

Hvatningarsjóður Kviku hefur úthlutað styrkjum til 10 iðnnema og 6 kennaranema en sjóðurinn hefur það hlutverk að hvetja og styrkja ungt fólk til iðn- og kennaranáms. Markmið sjóðsins er að efla umræðu og vitund um mikilvægi iðn- og kennaranáms og þýðingu starfa sem því tengjast fyrir íslenskt atvinnulíf. 

Samstarfsaðilar Kviku í Hvatningarsjóðnum eru Samtök iðnaðarins og mennta- og barnamálaráðuneytið. Sjóðurinn veitir styrki fyrir allt að 10 milljónum króna árlega, en miðað er við að einstaka styrkir séu frá 500.000 til 1.000.000 króna.

Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku banka: „Mikilvægi iðnnáms og kennaranáms fyrir samfélagið og íslenskt atvinnulíf er ótvírætt og erum við í Kviku afar stolt af því að geta hvatt ungt fólk til dáða í þessum námsgreinum. Frá því að hvatningarsjóðurinn var stofnaður hefur aðsókn í iðnnám aukist verulega. Jafnframt hefur aðsókn í kennaranám aukist og brautskráningum fjölgað samhliða. Vaxandi fjöldi sækir um styrk úr sjóðnum á hverju ári. Við erum stolt af framlagi hans og þökkum Samtökum iðnaðarins og mennta- og barnamálaráðuneytinu fyrir mjög gott samstarf.“

Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins: „Samtök iðnaðarins hafa allt frá stofnun þeirra fyrir 30  árum lagt mikla áherslu a mennta- og mannauðsmál með það fyrir augum að auka veg iðn- og tæknináms. Aðsókkn í slíkt nám er nú mikil og því ríður á að flýta enn frekar byggingu nýs Tækniskóla í Hafnarfirði svo bætt aðstaða og sveigjanlegt starfsumhverfi fyrir þennan mikilvæga nemendahóp verði tryggð. Það er einkar ánægjulegt að taka þátt í að hvetja og styrkja ungt fólk í iðnnámi til frekari dáða. Ég óska öllum styrkþegum innilega til hamingju og óska þeim velfarnaðar í sínum framtíðarverkefnum.“

Nemendurnir sem hlutu styrki: 
Iðnnemar

  • Aldís Lilja Sigurðardóttir nemi í gull- og silfursmíði í Tækniskólanum
  • Emilía Reynisdóttir nemi í rafvirkjun í Tækniskólanum
  • Eva Guðrún Geogiades nemi í byggingariðnfræði í Háskólanum í Reykjavík
  • Eyjólfur Eiríksson nemi í múriðn
  • Helgi Líndal Elíasson nemi í gullsmíði í Tækniskólanum
  • Katla Þórudóttir nemi í matreiðslu í Menntaskólanum í Kópavogi
  • Tara Ósk Markúsdóttir nemi í vélstjórn og rafvirkjun í Tækniskólanum
  • Tómas Máni Firth nemi í húsasmíði í Tækniskólanum
  • Vinný Dögg Jónsdóttir nemi í rafvirkjun í Tækniskólanum
  • Ævar Ótto Arnarson nemi í rafvirkjun í Verkmenntaskólanum á Akureyri

Kennaranemar

  • Ásta Dís Helgadóttir nemi í grunnskólakennslu yngri barna í Háskóla Íslands
  • Dagrún Sól Barkardóttir nemi í kennarafræðum í Háskólanum á Akureyri
  • Ella Dís Thorarensen nemi í kennslu list- og verkgreinum í Háskóla Íslands og húsasmíði í Tækniskólanum
  • Hildur Lovísa Hlynsdóttir nemi í kennslufræðum yngri barna í Háskóla Íslands
  • Jóhann Óli Rainersson nemi í stærðfræðikennslu í Háskóla Íslands
  • Lína Dóra Hannesdóttir nemi í kennsluréttindum á framhaldsskólastigi í Háskólanum a Akureyri

Á myndinni hér fyrir ofan sem tekin var við afhendingu styrkjanna eru forstjóri Kviku banka og formaður SI ásamt hluta af nemendum sem var úthlutað styrkjum.