Fréttasafn



26. sep. 2023 Almennar fréttir Félag íslenskra snyrtifræðinga Iðnaður og hugverk Starfsumhverfi

Hvetja ráðuneytið til að setja reglugerð um fylliefni

Á vef Félags íslenskra snyrtifræðinga kemur fram að af gefnu tilefni vegna umfjöllunnar Stöðvar 2 um ísprautanir með fylliefnum vilji félagið benda á að slíkt er ekki hluti af því sem faglærðir snyrtifræðingar innan Félags íslenskra snyrtifræðinga starfa við. Innan Félags íslenskra snyrtifræðinga séu faglærðir snyrtifræðingar sem sé trygging fyrir fagmennsku, gæðum, öryggi og neytendavernd.

Félag íslenskra snyrtifræðinga gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð af því tagi sem lýst er í þætti Stöðvar 2 þar sem ófaglærðir sinna fegrunarmeðferðum með fylliefnum.

Félag íslenskra snyrtifræðinga deilir áhyggjum húð- og lýtalækna og hvetur heilbrigðisráðuneytið til að setja reglugerð hérlendis um meðferðir með fylliefni til að tryggja öryggi neytenda.

Félag íslenskra snyrtifræðinga fagnar umræðu um ísprautanir með fylliefnum enda verði það til þess að vekja athygli á mikilvægi þess að slíkar meðferðir séu í höndum fagfólks sem getur ábyrgst gæði og fagmennsku.

Hér er hægt að nálgast yfirlýsingu félagsins.

Vísir, 25. september 2023.

mbl.is, 25. september 2023.