Fréttasafn



11. jan. 2021 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Kaka ársins er hraunkaka

Úrslit í keppni um köku ársins hjá Landssambandi bakarameistara fór fram í beinni útsendingu í þættinum Vikan með Gísla Marteini síðastliðið föstudagskvöld. Þrjár kökur, sem þóttu skara fram úr í forkeppni í nóvember, kepptu að þessu sinni til úrslita. Gestir sjónvarpsþáttarins þau sr. Davíð Þór Jónsson, Vilhelm Þór Da Silva Neto, leikari, og Dóra Jóhannsdóttir, leikkona og leikstjóri, skipuðu dómnefndina og varð kaka Garðars Tranberg hjá Bakarameistaranum fyrir valinu sem kaka ársins 2021. 

Kaka Garðars er Góu hraunkaka með karamellumús og ferskju- og ástaraldinfrómas. Kakan verður sett í sölu í bakaríum Landssambands bakarameistara í tilefni konudagsins 21. febrúar næstkomandi.

Á vef RÚV er hægt að horfa á innslag Berglind Festival þar sem hún fjallar um köku ársins.

Garðar Tranberg hjá Bakarameistaranum með köku ársins.