Fréttasafn



3. maí 2021 Almennar fréttir Menntun

Kanna áhuga fyrirtækja á átaksverkefni um vinnustaðanám

Iðan tekur þátt í átaksverkefni stjórnvalda sem miðar að því að fjölga tækifærum fyrir iðnnema sem eru án námssamnings að komast í vinnustaðanám í sumar. Þessa dagana er Iðan að kanna áhuga hjá fyrirtækjum að taka þátt í þessu átaksverkefni. Á vef Iðunnar er hægt að taka þátt í könnuninni. 

Markmiðið með átaksverkefninu er að hvetja fyrirtæki til að taka viðbótarnema og þar með fjölga nemum í vinnustaðanámi. Úrræði stjórnvalda er tímabundið og gildir frá 15. maí til 15. september á þessu ári. Hverjum nema fylgir styrkur sem nemur launum skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags auk mótframlags í lífeyrissjóð. Fyrirtæki greiða önnur launatengd gjöld s.s. orlof, í sjúkrasjóð, tryggingagjald, orlofsheimilasjóð og Virk.