Fréttasafn



2. jún. 2023 Almennar fréttir Mannvirki Menntun

Kynningarátak fyrir málmiðngreinar

Allir iðn- og verkmenntaskólar sem bjóða upp á nám í málmiðngreinum standa fyrir kynningarátaki undir yfirskriftinni Vertu stálslegin. Markmiðið með átakinu er að vekja athygli á þeim fjölbreyttu tækifærum sem nám í málmiðngreinum hefur upp á að bjóða. Hvort sem stefnan er sett á krefjandi háskólanám eða frama í atvinnulífinu, þá eru námsgreinar eins og stálsmíði, rennismíði og vélvirkjun, vandað nám sem gefur nemendum góða innsýn í heim málmiðnaðarins.

Tinna María sem er nemandi í vélvirkjun hjá Borgarholtsskóla segir meðal annars: „Ef ég tala fyrir sjálfa mig þá er ég mjög ánægð með að ég valdi þetta nám ef þú ert í grunnskólanámi og ert að hugsa um framhaldsskólanám endilega hlusta á hjartað velja það sem þig langar og stökkva út í djúpu laugina.“

FacebookStalsleginnTinna

FacebookStalsleginnSol