Fréttasafn



10. nóv. 2020 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Landssamband bakarameistara

Landssamband bakarameistara gerir athugasemdir við OECD

Landssamband bakarameistara, LABAK, gerir alvarlegar athugasemdir við ummæli framkvæmdastjóra OECD þess efnis að bakaraiðn ætti ekki að njóta lögverndar. Ummælin féllu fyrr í dag á kynningarfundi um niðurstöður samkeppnismats OECD á samkeppnishindrunum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá landssambandinu þar sem jafnframt segir:

Landssamband bakarameistara gerir enn fremur alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð Efnahags- og framfarastofnunar OECD um framkvæmd á sjálfstæðu samkeppnismati á því regluverki sem gildir á sviðum byggingarstarfsemi og ferðaþjónustu á Íslandi. Í niðurstöðum sínum til úrbóta á þeim sviðum leyfir stofnunin sér að setja fram tillögu þess efnis að afnema eigi löggildingu bakara. Ekki er annað hægt en að furða sig á þessum starfsháttum stofnunarinnar sem með þessari tillögu virðist fara langt út fyrir verksvið sitt.

Landssamband bakarameistara bendir á að í íslensku samfélagi er almennt lögð rík áhersla á fagmennsku, gæði, öryggi, neytendavernd og menntun. Kapp er einnig lagt á að auka fjölda iðnmenntaðra og mæta þannig þörf markaðarins fyrir slíkt vinnuafl. Lögverndun iðngreina eru í raun ákveðin undirstaða í þeirri vegferð enda er markmið þeirra að tryggja gæði sem og fagleg og örugg vinnubrögð í iðngreinum.

Landssamband bakarameistara fagnar allri umræðu um mikilvægi löggildingar enda er tilgangur þess kerfis að ábyrgjast gæði og fagmennsku. Hins vegar er mikilvægt að sú umræða fari fram á réttum vettvangi en ekki kastað fram með óábyrgum hætti eins og Efnahags- og framfarastofnun OECD leyfir sér að gera.

Fréttablaðið, 10. nóvember 2020

mbl.is, 10. nóvember 2020

Vísir, 10. nóvember 2020

RÚV, 10. nóvember 2020