Árlegur fundur samtaka ráðgjafarverkfræðinga á Norðurlöndunum (RiNord) var haldinn á Íslandi dagana 27.-29. ágúst. RiNord er árlegur viðburður sem Félag ráðgjafarverkfræðinga tekur þátt í þar sem fulltrúar samtaka ráðgjafarverkfræðinga á Norðurlöndunum koma saman og ræða almennt um stöðu greinarinnar og fagleg áherslumál í hverju landi.
Á fundinum var farið yfir stöðu ráðgjafarverkfræðinga á Norðurlöndunum, þróun efnahagsmála og markaða í hverju landi og helstu áherslur samtakanna á komandi misserum. Þrátt fyrir ólíkar aðstæður milli landa standa fyrirtækin frammi fyrir mörgum sameiginlegum áskorunum og tækifærum, meðal annars vegna óvissu í efnahagsmálum, breyttra fjárfestinga og aukinnar áherslu á innviði, viðnámsþrótt og öryggismál.
Sérstök vinnustofa var helguð áhættu og óvissu í starfsemi ráðgjafarverkfræðinga. Þar var meðal annars rætt hvernig fyrirtæki geta betur greint og undirbúið sig fyrir mismunandi áhættuþætti og sviðsmyndir og hvernig samtök í löndunum geta stutt fyrirtækin í þeirri vinnu.
Þróun gervigreindar og áhrif hennar á viðskiptamódel verkfræðistofa voru einnig fyrirferðarmikil í umræðunni. Fjallað var um hvernig gervigreind er þegar farin að breyta vinnubrögðum ráðgjafarverkfræðinga, hvaða áhrif hún geti haft á framleiðni og verðmætasköpun og hvort hefðbundin viðskiptamódel, þar sem þjónusta er að stórum hluta seld út frá vinnustundum, þurfi að þróast samhliða tækninni. Einnig var rætt um væntingar verkkaupa til notkunar gervigreindar og þær áskoranir sem fyrirtæki á Norðurlöndunum standa sameiginlega frammi fyrir.
Að lokum var horft til alþjóðlegra mála með þátttöku EFCA, Evrópusamtaka ráðgjafarverkfræðinga, og fundinum lauk með sameiginlegri umræðu um markaði, áhættu og helstu óvissuþætti í starfsumhverfi norrænna ráðgjafarverkfræðinga.



