Fréttasafn



20. jan. 2017 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Orka og umhverfi

Lean Green sérfræðingur talar á ráðstefnu Manino og SI

Kelly Singer, sérfræðingur frá Lean Green Institute, kemur frá París til að ræða aðferðarfræði Lean Green og mikilvægi sjálfbærni á opinni ráðstefnu sem Manino og Samtök iðnaðarins standa fyrir um straumlínustjórnun og umhverfismál á mánudaginn næstkomandi 23. janúar kl. 8.30-12.30 í Háskólanum í Reykjavík, stofu M215 og M216. Lean Green aðferðarfræðin er notuð til að varðveita orku, minnka útblástur og koma í veg fyrir sóun. Þannig geta fyrirtæki smám saman minnkað vistspor vöru. 

Dagskrá

  • Kelly Singer, Lean Green Institute - Sustainability Lessons from the Front Lines of Lean and Green Companies
  • Svanborg Guðjónsdóttir, University College of Northern Denmark (UCN) - Green Lean - with focus on waste as a resource
  • Búi Bjarmar Aðalsteinsson, BSF Production - Shit happens and what to do with it?
  • Magnús Þór Ásmundsson, Alcoa - Skipulegt umbótastarf í umhverfismálum skilar árangri
  • Hrönn Hrafnsdóttir, Reykjavíkurborg - Það sem ég tala um þegar ég tala um loftslagsmál
  • Kelly Singer, Lean Green Institute - Learning to see the 7 Green Wastes
  • Pétur Arason, Manino - Samantekt


Fundarstjóri er Bryndís Skúladóttir, sviðsstjóri framleiðslu- og matvælasviðs SI.

Í tengslum við ráðstefnuna verður haldin vinnustofa þar sem farið er ofan í saumana á því hvernig tengja má umhverfisstjórnun og straumlínustjórnun saman í fyrirtækjum og stofnunum og hvaða ávinningi má reikna með.

Skráning á ráðstefnuna er á vefsíðu Manino.

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá lean@manino.is eða bryndis@si.is.