Fréttasafn



9. des. 2021 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Meiri verðbólga vegna aðfangaskorts

„Þetta ástand tengist efnahagsbatanum í heiminum sem framboðshliðin hefur átt í erfiðleikum með að mæta,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, í frétt Fréttablaðsins um vöru- og aðfangaskort vegna verðhækkana á hrávöru og flutningum. Ingólfur segir að ástandið leiði til aukins kostnaðar við framleiðslu, meiri verðbólgu víða um heim og kaupmáttarskerðingar heimilanna.  

Hratt vaxandi eftirspurn meiri en framleiðslu- og flutningsgeta

Í Fréttablaðinu kemur fram að verðbólga í Bandaríkjunum sé 6,2% og 4,9% á evrusvæðinu. „Þetta er mjög mikil verðbólga í sögulegu samhengi og yfir verðbólgumarkmiði bæði bandaríska og evrópska seðlabankans.“ Þá segir í fréttinni að sumar tegundir af hrávöru hafi stökkbreyst í verði á árinu, liþíum hafi hækkað um 340% og magnesíum um 153%. Einnig kemur fram að verslunarmenn, ekki síst í byggingariðnaði, hafi lent í vandræðum vegna skorts á silíkoni og magnesíum. Ingólfur segir í fréttinni að timbur og stál séu meðal þess sem hafi hækkað í verði, allt niður í smæstu skrúfur og viðspyrnan í efnahagslífinu eftir Covid hafi fylgt hratt vaxandi eftirspurn, sem hafi orðið meiri en sem nemi framleiðslu- og flutningsgetu. 

Fyrirtæki og heimili taka á sig aukinn kostnað, aukna verðbólgu og lækkun kaupmáttar

Jafnframt kemur fram í Fréttablaðinu að skortur á gámum hafi bæði tafið flutninga á heimsvísu og hækkað verð þeirra, kostnaður við flutning á 40 feta gámi frá Austur-Asíu til Norður-Evrópu hafi nær tífaldast frá upphafi faraldursins. „Ástandið hefur varað lengur en greiningaraðilar reiknuðu með í fyrstu. Við sjáum að bæði fyrirtæki og heimili þurfa að taka á sig aukinn kostnað, aukna verðbólgu og lækkun kaupmáttar. Þetta gæti líka leitt til hækkunar á vöxtum, ekki síst ef þetta hefur áhrif á verðbólguvæntingar.“ 

Ekki útilokað að þetta ástand leiði til vaxtahækkana

Í Fréttablaðinu er einnig rætt við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóra, og Svan Karl Grjetarsson, eiganda MótX, byggingarfyrirtækis á íbúðamarkaði. Ásgeir varar við því að fyrirtæki noti tækifærið nú umfram aðstæður til að hækka vöruverð og ekki sé hægt að útiloka að þetta ástand leiði til vaxtahækkana. Svanur Karl segir dæmi um allt að 30% hækkun á timbri.

Fréttablaðið / Frettabladid.is, 9. desember 2021.

Frettabladid-09-12-2021