Mikill vöxtur í útflutningstekjum hugverkaiðnaðar
Útflutningstekjur hugverkaiðnaðar námu 151 ma.kr. á fyrri hluta þessa árs samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Útflutningstekjur greinarinnar hafa aukist um 21 ma.kr. frá því á sama tíma í fyrra eða um ríflega 16%. Útflutningstekjur greinarinnar hafa verið í stöðugum vexti síðustu ár en þær voru á fyrri hluta þessa árs tvöfalt hærri en fyrir fimm árum síðan. Vægi þeirra í heildar útflutningstekjum þjóðarbúsins voru ríflega 17% á fyrri hluta þessa árs. Í nýlegri greiningu SI um útflutningstekjur iðnaðar kemur fram að samtökin áætla að útflutningstekjur greinarinnar verði yfir 300 ma.kr. á þessu ári.
Hugverkaiðnaður er grein byggð á hugviti og fjárfestingu í nýsköpun. Fyrirtæki í hugverkaiðnaði byggja oft á umfangsmikilli rannsókna- og þróunarstarfsemi. Um er að ræða fyrirtæki í upplýsingatækni- og fjarskiptaiðnaði, þ.m.t. tölvuleikjagerð, lyfjaframleiðslu, líf- og heilbrigðistækni og fjölbreyttum hátækniiðnaði. Með vexti hugverkaiðnaðar hefur fjölbreytni útflutningstekna þjóðarbúsins aukist. Vöxtur greinarinnar hefur þannig rennt stoðum undir aukinn stöðugleika í hagkerfinu. Mikill fengur er af greininni því framleiðni í greininni er há og hún skapar verðmæt og eftirsóknarverð störf.
Innan hugverkaiðnaðar er upplýsingatækni- og fjarskiptaiðnaður. Mjög snarpur vöxtur hefur verið í þeirri starfsemi á undanförnum árum. Það sést vel hvort sem litið er til útflutningstekna, veltu fyrirtækja í greininni eða fjölda starfandi. Innan UT er einnig tölvuleikja- og gagnaversiðnaður. Hátækni-þjónustuiðnaður af ýmsum toga er líka hluti af þessari fjölbreytilegu flóru UT fyrirtækja og hefur sá hluti greinarinnar verið gróskumikill hér á landi á síðustu árum. Um er að ræða greinar á borð við kvikmyndaiðnað ásamt þjónustu arkitekta og verkfræðinga auk vísinda- og tækniþjónustu ýmiskonar. Lyfjaframleiðsla, líf- og heilbrigðistækniiðnaður eru einnig innan hugverkaiðnaðar. Mörg öflug fyrirtæki hafa haslað sér völl hér á landi á því sviði, verið í örum vexti síðustu ár og stór áform eru um frekari uppbyggingu hér á landi.