Ívar Kristjánsson, forstjóri tölvuleikjafyrirtækisins 1939 Games, bendir á mikilvægi opinberra styrkja til nýsköpunarfyrirtækja eins og 1939 Games í viðtali Þórodds Bjarnasonar í Morgunblaðinu en fyrirtækið hlaut Vaxtarsprotann í ár fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Ívar segir að án styrkjanna væri fyrirtækið líklega ekki á lífi í dag. „Við fengum styrki frá Rannís í upphafi okkar vegferðar og nú erum við í bullandi hagnaði. Þannig að samfélagið er að fá heilmikið til baka og þetta er náttúrlega allt í formi erlends gjaldeyris. Svo vonast maður til að geta verið hvatning fyrir aðra, að fólk sjái að þetta sé hægt,“ segir Ívar.
Velta 1939 Games jókst um 260% á milli 2024 og 2025, fór úr 466 milljónum króna í 1.675 milljónir króna. Ívar segir að árið í ár verði enn betra. „Tekjurnar í fyrra voru um 13 milljónir bandaríkjadala. Í ár verða þær á milli 18 og 20 milljónir dala, eða 2,2-2,4 milljarðar íslenskra króna.“ Um nánustu framtíð segir Ívar að þrjár nýjar vörur séu í þróun og framleiðslu. Í greininni kemur fram að 27 manns starfi hjá 1939 Games í dag. „Við þurfum að bæta við okkur einhverju af fólki á þessu ári og því næsta og ég reikna með því að við förum kannski upp í 40-45 starfsmenn áður en langt um líður.“
Morgunblaðið, 16. september 2026.




