Fréttasafn



22. okt. 2019 Almennar fréttir Mannvirki Menntun

Nemendur í rafiðn fá spjaldtölvur

Rafmennt sem er í eigu Samtaka rafverktaka og Rafiðnaðarsambands Íslands afhenti fyrir skömmu spjaldtölvur til nemenda í grunndeild rafiðnaðar við Tækniskólann í Reykjavík og Hafnafirði. Þetta er þriðja árið þar sem öllum nemum á landsvísu sem hefja nám í rafiðngreinum eru gefnar spjaldtölvur en að auki fá nemarnir aðgang að rafbok.is sem er vefur þar sem allt fagtengt námsefni er í boði án endurgjalds. Frá því að verkefnið hófst hafa verið afhentar á þriðja þúsund spjaldtölvur á landinu öllu en auk nema í rafiðnaði er kennurum við rafiðnaðardeildir viðkomandi skóla einnig gefnar spjaldtölvur.

Afhending-a-spjaldtolvum-okt-2019-3-Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART og viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, tók þátt í afhendingu spjaldtölvanna.

Afhending-a-spjaldtolvum-okt-2019-2-