Rafmennt sem er í eigu Samtaka rafverktaka og Rafiðnaðarsambands Íslands afhenti fyrir skömmu spjaldtölvur til nemenda í grunndeild rafiðnaðar við Tækniskólann í Reykjavík og Hafnafirði. Þetta er þriðja árið þar sem öllum nemum á landsvísu sem hefja nám í rafiðngreinum eru gefnar spjaldtölvur en að auki fá nemarnir aðgang að rafbok.is sem er vefur þar sem allt fagtengt námsefni er í boði án endurgjalds. Frá því að verkefnið hófst hafa verið afhentar á þriðja þúsund spjaldtölvur á landinu öllu en auk nema í rafiðnaði er kennurum við rafiðnaðardeildir viðkomandi skóla einnig gefnar spjaldtölvur.
Nemendur í rafiðn fá spjaldtölvur
Nemendur í rafiðn hafa fengið afhentar spjaldtölvur.


Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART og viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, tók þátt í afhendingu spjaldtölvanna. 
Tengt efni
Heimsókn í ný húsakynni Blikksmiðsins
Fulltrúi SI heimsótti ný húsakynni Blikksmiðsins að Bæjarflöt 2.

Fjölmennt á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Halda þarf sérstöðu Íslands á lofti við mótun umhverfisregluverks í Evrópu
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði umræðum á Umhverfisdegi atvinnulífsins um hagsmunagæslu orku- og umhverfismála í Brussel.
