Stjórn Samtaka rafverktaka, SART, heimsótti Norðurál á Grundartanga fyrir skömmu. Stjórnarmenn fengu þar góða kynningu á starfsemi fyrirtækisins. Að henni lokinni var farið í skoðunarferð um kerskála og steypuskála álversins.
Álverið á Grundartanga framleiðir rúmlega 300.000 tonn af áli á ári og hjá Norðuráli starfa yfir 700 manns. Útflutningsverðmæti fyrirtækisins nam rúmlega 101 milljarði króna árið 2025 eða um 11% af heildarútflutningsverðmætum Íslands það ár.
Í álveri af þessari stærð eru raforka og rafbúnaður undirstaða alls rekstrarins. Heimsóknin gaf stjórninni því dýrmæta innsýn í umfang og kröfur starfseminnar og þau tækifæri sem þar eru fyrir rafiðnaðinn.
Stjórn SART þakkar Norðuráli kærlega fyrir höfðinglegar móttökur og fróðlega kynningu.





