Beint í efni

Há­deg­is­fund­ur Mál­ara­meist­ara­fé­lags­ins um lífeyrismál

Málarameistarafélagið stóð fyrir vel sóttum hádegisfundi um lífeyrismál í Húsi atvinnulífsins.

Málarameistarafélagið

Lífeyrismál voru í brennidepli á hádegisfundi Málarameistarafélagsins sem haldinn var á dögunum í Húsi atvinnulífsins. Björn Berg Gunnarsson, sérfræðingur í fjármálum og lífeyrismálum, var fyrirlesari fundarins.

Björn fór yfir ýmis atriði sem vert er að huga að við undirbúning fyrir framtíðina og fræddi félagsmenn um lífeyrismál á aðgengilegan hátt. Erindið talaði til félagsmanna á öllum aldri, enda kom fram á fundinum að gagnlegt væri að kynna sér stöðu sína og möguleika óháð því hversu langt er í starfslok.

Fundurinn var vel sóttur og almenn ánægja var meðal félagsmanna með fræðsluna.

Málarameistarafélagið
Málarameistarafélagið
Málarameistarafélagið