Fréttasafn



10. feb. 2016 Menntun

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands afhent

 Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 26. janúar síðastliðinn. Birgitta Steingrímsdóttir og Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, nemar frá Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands, hlutu verðlaunin fyrir verkefnið Þekkirðu fuglinn? Rannsókn á fuglafræðiþekkingu barna og þróun og gerð spils sem gerir þeim kleift að læra í gegnum leik. Forseti Íslands, Ólafur ragnar Grímsson, afhenti þeim verðlaunin.

Þekkirðu fuglinn? er þriggja mánaða rannsóknarverkefni sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið 2015. Viðfangsefni verkefnisins eru af tvennum toga; rannsókn á núverandi þekkingu barna á íslenskum fuglum og í framhaldi af því hönnun og gerð spils um fuglana sem kennarar geta nýtt sem námsgagn í náttúrufræði. Spilið hefur verið í prófun í grunnskólum í vetur og fengið góðar undirtektir. Næstu skref eru að hefja framleiðslu og munu umsagnir kennara og nemenda nýtast til betrumbóta svo að spilið verði að enn betra kennslutæki.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið áður. Verðlaunin voru fyrst veitt 1996 og eru því nú veitt í tuttugasta og fyrsta sinn. Verðlaunin í ár eru púðar úr vörulínunni Notknot eftir Ragnheiði Ösp Sigurðardóttur vöruhönnuð sem framleiðir undir nafninu Umemi. Allir sem voru tilnefndir og hlutu þá viðurkenningu að verkefnið þeirra var valið sem öndvegisverkefni sjóðsins fengu viðurkenningarskjal undirritað af forsetanum.

Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins styrktu Nýsköpunarsjóð námsmanna við veitingu Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands í ár.

Ljósmynd: Anton Brink