Fréttasafn



15. maí 2020 Almennar fréttir Mannvirki

Óásættanlegt að hafa ekki útboð vegna LED-væðingar

„Orka náttúrunnar hefur það hlutverk að framleiða og selja rafmagn, það er óásættanlegt að fyrirtæki í eigu sveitarfélaga fái verkefni af þessu tagi og það án útboðs,“ segir Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, í Fréttablaðinu í dag þar sem fjallað er um kæru sem Samtök iðnaðarins hafa sent til kærunefndar útboðsmála vegna samninga Reykjavíkurborgar við Orku náttúrunnar (ON) um rekstur, viðhald og LED-væðingu götulýsingar í Reykjavík. Í fréttinni segir að undirbúningur vegna LED-væðingar Reykjavíkurborgar hafi hafist árið 2017 og sé heildarkostnaður vegna þess áætlaður um 3,6 milljarðar króna, þar af um 300 milljónir á þessu ári. Fram komi í kærunni að SI telja að viðskipti borgarinnar við ON séu útboðsskyld og krefjast þess að samningurinn verði lýstur óvirkur og borginni verði gert skylt að bjóða innkaupin út. Þá segir að LED-væðingin feli í sér að skipta út lömpum til að fá betri ljósastýringu og minna viðhald en hver lampi á að borga sig upp á sex til sjö árum. Alls séu um 30 þúsund ljósastaurar í borginni og aforkan sé keypt af ON. Fleiri sveitarfélög hafi ekki farið í útboð, og segir Jóhanna Klara að kæran beinist að borginni þar sem hún sé stærsta sveitarfélagið.

Óeðlilegt að daglegt viðhald á búnaði og einskiptisaðgerð séu ekki boðin út

Jóhanna Klara segir málið þríþætt. „Í fyrsta lagi teljum við það óeðlilegt að daglegt viðhald á búnaði sé ekki boðið út hjá Reykjavíkurborg en slíkt tíðkast annars staðar hér á landi og erlendis. Í öðru lagi viljum við að þessi einskiptisaðgerð sem LED-væðingin er verði boðin út, enda er um að ræða verkefni sem atvinnulífið getur vel sinnt. Í þriðja lagi skiljum við ekki hvernig hægt er að færa rök fyrir því að þessi verkefni endi á borði Orku náttúrunnar án útboðs.“

Þá kemur fram í frétt Fréttablaðsins að hluti kærunnar snúi að því hvort ON falli undir undanþágu um útboðsreglur sem heimilar hinu opinbera að sinna verkefnum innanhúss, og sé það álit borgarlögmanns að það eigi við um ON. Fram komi í svari borgarinnar við fyrirspurn SI að árið 2014 hafi ON tekið við samningi borgarinnar við OR sem gerður var árið 2010 um rekstur og viðhald götulýsingar í Reykjavík. Einnig að unnið hafi verið að því síðustu ár að undirbúa kerfið til að verktakar geti boðið í viðhald. Til þess að hægt sé að bjóða út rekstur og viðhald á kerfinu þurfi að aðskilja kerfið frá dreifikerfinu með uppsetningu búnaðar í skápum fyrir utan dreifistöðvar ásamt fleiru.

Fréttablaðið / Frettabladid.is, 15. maí 2020.