Fréttasafn



30. des. 2022 Almennar fréttir Menntun

Opið fyrir tilnefningar til menntaverðlauna

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Menntaverðlauna atvinnulífsins sem verða afhent í Hörpu þriðjudaginn 14. febrúar þegar Menntadagur atvinnulífsins fer fram. Frestur er til 23. janúar og er óskað eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf. Einungis skráðir aðildarfélagar SA eru gildir með tilnefningu. Hægt er að senda tilnefningar í tölvupósti á verdlaun@sa.is.

Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum. Menntafyrirtæki ársins er valið og menntasproti ársins útnefndur, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið.

Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru:

  • að skipulögð og markviss fræðsla sé innan fyrirtækisins
  • að sem flest starfsfólk taki virkan þátt
  • að haldið sé utan um mælikvarða í fræðslumálum
  • að hvatning sé til staðar til frekari þekkingaröflunar

Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru:

  • að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja
  • samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja.

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi,  Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.