Nýsveinar fengu sveinsbréf sín afhent við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í byrjun nóvember. Iðan fræðslusetur stóð að afhendingunni og Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar, stýrði athöfninni.
Sveinsbréf voru afhent í sex iðngreinum: húsasmíði, vélvirkjun, prentsmíði, kjötiðn, hársnyrtiiðn og bifvélavirkjun. Flestir nýsveinanna voru í húsasmíði eða 32, í bifvélavirkjun voru 11, vélvirkjun 7, hársnyrtiiðn 3, kjötiðn 2 og 1 í prentsmíði.
Að athöfn lokinni bauð Iðan nýsveinum og gestum upp á veitingar og myndatöku til að minnast áfangans.
Félag hársnyrtimeistara á Norðurlandi, Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi og Málmur - samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, sem öll eru aðildarfélög SI óska nýsveinunum til hamingju með áfangann.






