Fréttasafn



11. okt. 2024 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki

Opið fyrir umsóknir hjá Aski - mannvirkjarannsóknarsjóði

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Aski - mannvirkjarannsóknarsjóði hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fyrir árið 2024. Hægt er að sækja um til og með 9. nóvember á hms.is/askur, en tæplega tvöfalt meira fjármagn er til úthlutunar í ár miðað við fyrri ár.

Á vef HMS segir að í ár sé fjórða styrkár Asks, en sjóðurinn var stofnaður til að efla stoðir byggingariðnaðarins í samstarfi við háskólasamfélag og atvinnulíf. Alls eru 185 milljónir króna til úthlutunar í ár, og er það hátt í tvöföldun frá fyrri styrkárum. Árin 2021 og 2022 voru 95 milljónir króna til úthlutunar, en í fyrra nam heildarúthlutunin 101,5 milljónum króna.

Styrkir úr Aski eru veittir í samstarfi við innviðaráðuneytið og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið. Sjóðurinn veitir styrki til mannvirkjarannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskorunum á sviði mannvirkjagerðar. Á vef HMS segir að við hverja úthlutun sé horft til þarfa, eðlis og áskorana á sviði mannvirkjagerðar, áherslu á nýsköpun og markmiða um sjálfbærni. Leitast sé við að opna opinbert styrkjaumhverfi fyrir fleiri aðila úr háskólasamfélaginu og atvinnulífinu og einnig að stuðla að auknu samstarfi við erlenda rannsóknaraðila.

Áhersluflokkar Asks árið 2024:

  • Byggingargallar, raki og mygla
  • Byggingarefni
  • Orkunýting og losun
  • Tækninýjungar
  • Gæði

Myndin hér fyrir ofan er frá afhendingu styrkja á síðasta ári.