Fréttasafn



6. feb. 2020 Almennar fréttir Menntun

OR og Samkaup fá menntaverðlaun atvinnulífsins

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhentu verðlaunin á Menntadegi atvinnulífsins sem fram fór í Hörpu í gær. Orkuveita Reykjavíkur var valin Menntafyrirtæki ársins og Samkaup Menntasproti ársins. Menntadagurinn er árlegur viðburður en að þessu sinni var fjallað um sköpun í ýmsum myndum. Að deginum standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

Menntafyrirtaeki-arsins-2020-Orkuveita-ReykjavikurLilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Ásdís Eir Símonardóttir, mannauðssérfræðingur hjá OR, Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.

Í tilkynningu kemur fram að Orkuveita Reykjavíkur reki mikilvæga innviði samfélagsins í orkuframleiðslu og veitustarfsemi. Fyrirtækið sér þremur af hverjum fjórum Íslendingum fyrir rafmagni, heitu og köldu vatni ásamt því að annast fráveitu og gagnaflutning. Rík og löng hefð er fyrir gróskumiklu fræðslu- og símenntunarstarfi í fyrirtækinu til að mæta áskorunum nýrrar tækni og breytingum á störfum.„Reynslan hér hjá Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélögunum er sú að fræðsla og stöðug þekkingarleit eru lykilþættir í því að fyrirtækin laði að sér framúrskarandi starfsfólk og haldi í það. Sífellt hraðari breytingar í þeim samfélögum sem við þjónum kalla á nýjar lausnir og nýsköpun og framþróun þjónustunnar er grundvöllur þess að fyrirtækið standist tímans tönn, sé sjálfbært. Starfsfólkið og stöðug þróun þekkingar þess er því ein af forsendum þess að reka sjálfbært fyrirtæki. Skipulegt fræðslustarf er þar nauðsyn,“ segir Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.

Menntasprotinn-2020-SamkaupLilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsvið Samkaupa, Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.

Í tilkynningu segir að mikil áskorun sé fólgin í rekstri 60 verslana með tæplega 1.300 starfsmenn um land allt undir fjölmörgum vörumerkjum og þjónustuleiðum Samkaupa. Yfirstjórn Samkaupa tók ákvörðun um að sérstök áhersla á fræðslu- og menntamál væri einn lykilþátta góðs rekstrar. Sett eru fram skýr markmið þar sem áhersla er lögð á hæfni og færni starfsfólks á öllum sviðum rekstrarins. Leiðarljósið er starfsánægja, jákvætt viðhorf og gott orðspor jafnt fyrir nýtt starfs­fólk og viðskiptavini félagsins. „Samkaup leggja ríka áherslu á að styðja starfsfólk sitt til áframhaldandi starfsþróunar og er eitt af megin markmiðum fyrirtækisins að starfmenn Samkaupa fái tækifæri til að stunda nám samhliða vinnu sem opnar tækifæri til frekari starfsþróunar innan fyrirtækisins sem og utan þess,“ segir Gunnur Líf Gunnardóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa. „Við hjá Samkaupum erum mjög stolt af þessum verðlaunum enda höfum við lagt mikla vinnu í skipulagða og markvissa fræðslu innan fyrirtækisins. Það er mikið verk að stuðla að þekkingaröflun fyrir allt okkar fólk og að fá verðlaun fyrir vel unnin störf skiptir okkur miklu máli.“