Fréttasafn



24. nóv. 2016 Almennar fréttir Menntun

Óskað eftir tilnefningum fyrir Menntaverðlaun atvinnulífsins

Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 2. febrúar á næsta ári. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála fyrir 12. desember. Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki og menntasproti ársins 2017, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið. Verðlaunin verða veitt á Menntadegi atvinnulífsins 2. febrúar en þetta er í fjórða sinn sem dagurinn er haldinn. Kastjósinu er beint að íslenskri máltækni, menntun og fræðslu sem nýtist öllu atvinnulífinu.

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins. 

Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru:

  • að skipulögð fræðsla sé innan fyrirtækisins,
  • að stuðlað sé að markvissri menntun og fræðslu,
  • að sem flest starfsfólk taki virkan þátt og
  • að hvatning til frekari þekkingaröflunar sé til staðar.

 

Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru:

  • að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja,
  • samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja.

 

Skýr og skipulögð gögn hjálpa dómnefnd að meta verkefni. Skila á greinargerð að hámarki þrjár A4 blaðsíður þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja.

Tilnefningar á að senda í tölvupósti á sa@sa.is í síðasta lagi mánudaginn 12. desember. Ekki er tekið við tilnefningum eða gögnum eftir þann tíma.