Fréttasafn



13. feb. 2023 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Óskað eftir tilnefningum fyrir umhverfisviðurkenningu

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári hljóti umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2022. Kuðungurinn verður afhentur í tengslum við Dag umhverfisins og hefur sú breyting verið gerð á að tilnefningaflokkarnir eru nú tveir, fyrir stærri og minni fyrirtæki en minni fyrirtæki teljast þau sem eru með 50 starfsmenn og færri.

Tillögur berist til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins eigi síðar en 10. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið urn@urn.is eða með pósti í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík. Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki geta bæði tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.

Á vef Stjórnarráðsins er hægt að nálgast frekari upplýsingar.