Fréttasafn



17. jan. 2025 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki Orka og umhverfi Starfsumhverfi

Óþolandi og ólíðandi óvissa fyrir samfélagið

„Þessi óvissa sem upp er komin er algerlega óþolandi og ólíðandi fyrir okkar samfélag og þessa kyrrstöðu verður að rjúfa strax,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í forsíðufrétt Morgunblaðsins um dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem virkjunarleyfi Landsvirkjunar fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá var fellt úr gildi. „Ef þessi niðurstaða stendur þarf væntanlega að breyta lögunum því við hér á Íslandi getum ekki búið við þá stöðu að ekki sé hægt að reisa vatnsaflsvirkjanir. Það hefur verið skortur á raforku í nokkur ár og því miður eru enn nokkur ár í að ný raforka komi inn á kerfið, þannig að við erum í virkilega viðkvæmri stöðu núna sem birtist okkur m.a. í miklum verðhækkunum á raforku síðustu misserin, eins og fjallað hefur verið um. Það er útlit fyrir að þessi niðurstaða geti frestað framkvæmdum um eitt til tvö ár sem þýðir að við verðum í þessari viðkvæmu stöðu enn lengur. Það er nokkuð sem við sem samfélag getum ekki búið við.“

Tapaðar útflutningstekjur 14-17 milljarðar á ári

Þegar blaðamaður Morgunblaðsins spyr Sigurð um kostnaðinn sem af þessu geti hlotist segir hann erfitt að segja til um það en nefnir að fyrir ári hafi SI lagt mat á fjártjón vegna skerðingar á raforku til stórnotenda og samkvæmt því nam tjón vegna tapaðra útflutningstekna 14-17 milljörðum á ári. „Ef þetta er stærðargráðan eða jafnvel hærri tölur á hverju ári er ljóst að það munar um hvert ár.“

Tjón almennings vegna hækkaðs raforkuverðs

Sigurður bendir á að þá sé ótalið tjón almennings vegna hækkaðs raforkuverðs vegna skorts á framboði. „Það eru mjög margir milljarðar sem af þessu hljótast.“ Þá bendir Sigurður á að ríkisstjórnin hljóti að íhuga mjög alvarlega að breyta lögum án tafar. „Hugsanlega verður dómnum snúið á æðra dómstigi, en þessi óvissa er óviðunandi fyrir íslenskt samfélag.“

Undirbúningur í ríflega aldarfjórðung 

Sigurður segir í frétt Morgunblaðsins að Hvammsvirkjun sé búin að vera í undirbúningi í aldarfjórðung eða ríflega það, undirbúningur hafi hafist í lok síðustu aldar. „Það er alveg ljóst að búið er að velta við hverjum einasta steini í þessu máli. Okkur sem samfélagi hefur tekist mjög vel að finna jafnvægi á milli nýtingar auðlinda og náttúruverndar og ég veit að svo verður áfram. Það er mat manna sem skoðað hafa þessi mál vel undanfarin ár og áratugi að þessi virkjunarkostur er einn sá hagkvæmasti sem völ er á.“

Morgunblaðið / mbl.is, 17. janúar 2025.

Morgunbladid-17-01-2025