Beint í efni

Ráðgjöf til að­ild­ar­fyr­ir­tækja um smitvarnir á vinnustöðum

Guðmundur Freyr Jóhannsson, læknir, veitir aðildarfyrirtækjum SA ráðgjöf um smitvarnir á vinnustöðum.

Varúðarráðstafanir vegna kórónaveiru COVID-19

Samtök atvinnulífsins hafa gert samning við Guðmund Frey Jóhannsson, lækni, um að hann veiti aðildarfyrirtækjum samtakanna ráðgjöf, í tengslum við smitvarnir á vinnustöðum, sem SA greiða fyrir. Um er að ræða viðbragð við því sem fram kom á upplýsingafundi almannavarna um að nokkuð væri um að heilsugæslunni bærust fyrirspurnir frá fyrirtækjum um hvernig mætti haga starfsemi til þess að koma í veg fyrir smit. Þetta er gert með það fyrir augum að létta álagi af heilsugæslunni og aðstoða fyrirtæki við smitvarnir.

Ráðgjöfin kemur til með að standa yfir á meðan sóttvarnaráðstafanir yfirvalda eru í gildi. Haldinn verður fjarfundur í dag þriðjudaginn 14. apríl klukkan 13 með aðildarfyrirtækjum SA þar sem Guðmundur veitir almennar ráðleggingar um smitvarnir á vinnustöðum og tekur svo við spurningum. Félagsmönnum gefst færi á að senda Guðmundi spurningar í gegnum spjallþráð forritsins á meðan á fundinum stendur.

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir í tölvupósti og panta símtal í gegnum netfangið sa@sa.is.

Nánar á vef SA.

Ráðgjöf til aðildarfyrirtækja um smitvarnir á vinnustöðum - Samtök Iðnaðarins