Árlegur fundur samtaka iðntæknifyrirtækja á Norðurlöndum, SVAPU, var haldinn 26.-27. ágúst í Kaupmannahöfn. Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá SI, og Daníel Óli Óðinsson, formaður Málms, sóttu fundinn f.h. Samtaka iðnaðarins. Á fundinum var farið yfir stöðu efnahagsmála, vinnumarkaðsmála, pólitískt landslag á Norðurlöndunum og stöðu alþjóðamála. Ísland sker sig áfram úr hvað varðar vaxtastig sem er langt umfram það sem þekkist á Norðurlöndunum. Hagvöxtur mælist hærri í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. Mikill áhugi var á þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja skyldi á ný viðræður um aðild Íslands að ESB sem þá hafði ekki farið fram.
Á fundinum ræddu fulltrúar samtakanna samkeppnishæfni Evrópu, orkumál, þróun gervigreindar og áhrif Evrópuregluverks á vinnumarkaðsmál. Kim Abildgren, aðalráðgjafi hjá Danmarks Nationalbank, var með kynningu um áhrif gervigreindar á framleiðni og sköpuðust góðar umræður um áhrif á störf og afleidd áhrif.






