Fréttasafn



30. okt. 2018 Almennar fréttir Menntun

Ráðherra þakkar keppendum í iðn- og verkgreinum

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, færði fulltrúum Íslands á Evrópukeppni iðn- og verkgreina þakkir og afhenti þátttökuviðurkenningar í móttöku í ráðherrabústaðnum í gær. Um er að ræða keppnina EuroSkills sem fór fram í Búdapest fyrir nokkru þar sem fulltrúar Íslands kepptu í trésmíði, grafískri miðlun, málmsuðu, rafvirkjun, bakstri, framreiðslu, rafeindavirkjun og matreiðslu. Undirbúningur þeirra hófst strax í vor þegar þátttakendur voru valdir og handleiðsla þeirra hjá þjálfara hófst. 

Íslendingarnir stóðu sig vel á mótinu og hlaut Ásbjörn Eðvaldsson, rafeindavirki, silfurverðlaun á mótinu. Íslenski hópurinn fékk þrjár viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur en viðmiðunarmörk til að ná því eru 700 stig. Haraldur Örn Arnarson prentsmiður hlaut 704 stig og varð í 6. sæti af 14 keppendum, Jón Þór Einarsson rafvirki hlaut 700 stig og varð í 8. sæti af 15 keppendum og Kristinn Gísli Jónsson matreiðslumaður hlaut einnig 700 stig og varð í 10.-12. sæti af 23 keppendum. Auk þess kepptu Finnur Ingi Harrýsson í málmsuðu, Sigurður Borgar Ólafsson í framreiðslu, Þórey Lovísa Sigurmundsdóttir í bakstri og Þröstur Kárason í trésmíði.

Á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins er haft eftir Lilju að hún óski þátttakendunum hjartanlega til hamingju með þennan góða árangur á mótinu. „Keppni af þessu tagi er til þess fallin að auka metnað og skapa góð tengsl og ég efa ekki að reynsla þeirra af þátttökunni hefur verið bæði gefandi og skemmtileg. Iðnmenntun skiptir okkar samfélag afar miklu og á undanförnum misserum höfum við beitt okkur fyrir því að fjölga nemendum í iðnnámi ásamt því að auka aðgengi og áhuga á fjölbreyttu starfs- og verknámi. Fagmennska íslensku keppendanna er öðrum fyrirmynd og innblástur til góðra verka.“ 

Euroskills-oktober-2010-i-radherrabustad