Fréttasafn



31. okt. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Ráðstefna um neyslubreytingar og matvælaframleiðslu

Matvælalandið Ísland og Landbúnaðarklasinn standa fyrir ráðstefnu á Hótel Sögu þriðjudaginn 5. nóvember kl. 13.00-16.00 um neyslubreytingar og áhrif þeirra á matvælaframleiðslu. Fyrirlesarar koma úr ýmsum áttum en munu allir fjalla um það hvernig breytingar á neysluhegðun almennings og tæknibreytingar munu snerta matvælageirann í nánustu framtíð.

Dagskrá

  • Hvað segja kannanir um neysluhegðun Íslendinga? Friðrik Björnsson, viðskiptastjóri hjá Gallup
  • Sjálfbærnivæðing matvælakerfisins og tækifæri Íslands Sigurður H. Markússon, Landsvirkjun/University of Cambridge
  • Challenges and Opportunities in the AgriFood Sector Marit Sommerfelt Valseth, ráðgjafi hjá frá Innovasjon Norge
  • Hvað er handan við hornið? Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands

Hlé

  • Hvað vilja viðskiptavinir á morgun? Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar
  • Matarvitund og þekking: hinn upplýsti neytandi eða áhrifavaldar sem ráða för? Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands
  • Matarsporið – kolefnisreiknir fyrir máltíðir Helga Jóhanna Bjarnadóttir, sviðsstjóri hjá Eflu verkfræðistofu

  • Landnýting og breytt framtíð Árni Bragason, forstjóri Landgræðslunnar
  • Má bjóða þér kakkalakkamjólk? Elín M. Stefánsdóttir, stjórnarformaður Mjólkursamsölunnar

Fundarstjóri er Finnbogi Magnússon, formaður Landbúnaðarklasans.

Matvælalandið Ísland er samstarfsvettvangur aðila sem starfa í matvælageiranum. Innan þess eru Samtök iðnaðarins, Bændasamtök Íslands, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Íslandsstofa, Matís, Samtök ferðaþjónustunnar, Háskóli Íslands og Matarauður Íslands. Landbúnaðarklasinn er samstarfsnet þeirra sem starfa í landbúnaði og tengdum greinum.

Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis en skráning er nauðsynleg.

Hér er hægt að skrá sig á ráðstefnuna.