Fréttasafn



10. ágú. 2023 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Orka og umhverfi Samtök álframleiðenda á Íslandi

Samkeppnisstaða skekkist með íþyngjandi reglugerðum

Mikið yfirflæði er af íþyngjandi reglugerðum frá Brussel þessi misserin. Svo virðist sem hver stofnunin togi í sína áttina og vart þarf að koma á óvart að í slíku reiptogi verði mönnum lítt ágengt. Þetta segir Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, í grein í ViðskiptaMogganum. Hann segir að markaðar séu stefnur í ólíkum málaflokkum sem gangi hver gegn annarri. Í einu orðinu sé allt kapp lagt á að efla samkeppnishæfni iðnaðar í Evrópu á meðan í öðru virðist helst lagt upp úr því að hækka framleiðslukostnað iðnfyrirtækja.

Kostnaður við losun sextánfaldast á sex árum

Pétur segir að kostnaður vegna losunar á tonni af CO2 innan ETS-kerfisins hafi verið 5 evrur árið 2017, en núna sé verðið komið í um 80 evrur, og hafi kostnaður við losun innan ETS-kerfisins því sextánfaldast á sex árum. Hann segir að upplegg með CBAM sem stendur fyrir „carbon border adjustment mechanism“ sé  að jafna kolefnisgjöld yfir landamæri þannig að allir standi jafnt að vígi á evrópskum markaði, en miðað við þau drög sem liggi fyrir stefni þvert á móti í að samkeppnisstaðan skekkist enn frekar. Í þeim sé gert ráð fyrir að nota tækifærið og hækka kolefnisgjöld enn frekar á iðnað í Evrópu, en það hafi óhjákvæmilega í för með sér að framleiðslukostnaður fari upp úr rjáfrinu, og um leið skapist hætta á að evrópsk framleiðslufyrirtæki hrekist til annarra heimsálfa.

Ísland viðkvæmt fyrir skattlagningu á samgöngur í lofti og á legi

Pétur segir í greininni að ef það gerist þá dragi það ekki aðeins úr verðmætasköpun og þar með velferð í Evrópu, heldur dýpki það einnig loftslagsvandann, því kolefnisspor framleiðsluiðnaðar sé almennt lægra innan Evrópu en utan. „Ljóst er að þessar aðgerðir ESB geta haft í för með sér alvarleg áhrif á íslenskt efnahagslíf. Þannig heyra æ fleiri greinar undir ETS-kerfið og þurfa að greiða fyrir losun. Íslensk stjórnvöld hafa lýst áhyggjum af samkeppnisstöðu millilandaflugs til og frá Íslandi ef flugfélög þurfa að greiða að fullu fyrir sína losun og eins er ljóst að kostnaður við skipaflutninga til og frá Íslandi mun hækka verulega þegar þeir falla undir ETS-kerfið. Eylandið Ísland, sem byggir afkomu sína á útflutningi, er eðlilega viðkvæmt fyrir skattlagningu á samgöngur í lofti og á legi.“

Kostnaður mun margfaldast á næstu árum

Í greininni víkur Pétur að hagsmunum álframleiðslu sem séu ekki síður stórir. Hann segir að ljóst sé að framleiðslukostnaður áls í Evrópu muni hækka með CBAM en um leið hafi evrópskur áliðnaður lýst áhyggjum af glufum í kerfinu, sem geri álframleiðendum utan Evrópu kleift að komast hjá kolefnisgjöldum. „Íslenskir álframleiðendur fara ekki fram á neina sérmeðferð, en gera kröfu um að allir sitji við sama borð. Mikilvægt er að íslensk stjórnvöld standi vaktina og hugi að samkeppnisstöðu íslensks áliðnaðar. Nú þegar nema gjöld íslenskra álvera fyrir losun á annan milljarð og ef áætlanir vegna CBAM og ETS ganga eftir mun sá kostnaður margfaldast á næstu árum.“

Íslensk álframleiðsla skapar fjórðung gjaldeyristekna

Í niðurlagi greinarinnar segir Pétur að vart þurfi að orðlengja hversu miklir hagsmunir séu í húfi fyrir þjóðarbúið. Ef horft sé til ársins 2022 þá hafi íslensk álframleiðsla skapað fjórðung gjaldeyristekna Íslands og hafi munið um 400 milljörðum. Innlendur kostnaður álfyrirtækjanna þriggja hafi numið 176 milljörðum.  „Þau keyptu vörur og þjónustu af hundruðum innlendra fyrirtækja og má rekja methagnað íslenskra orkufyrirtækja til góðrar afkomu íslenskra álvera. Það er því til mikils að vinna, að viðhalda samkeppnishæfni íslensks áliðnaðar, enda sést það vel á stórum fjárfestingum íslenskra álvera hér á landi að þar er horft til langrar framtíðar.“

Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.

ViðskiptaMogginn, 9. ágúst 2023.