Beint í efni

Samstaða um nauðsyn smærri og hagkvæmari íbúða

Lækka þarf lóðaverð, nýta fjárfestingu í innviðum, einfalda byggingareglugerð, stytta afgreiðslutíma leyfa og lækka fjármagnskostnað til þess að hægt sé að byggja vandaðar og hagkvæmar íbúðir með sem hröðustum hætti.

Samstaða um nauðsyn smærri og hagkvæmari íbúða

Lækka þarf lóðaverð, nýta fjárfestingu í innviðum, einfalda byggingareglugerð, stytta afgreiðslutíma leyfa og lækka fjármagnskostnað til þess að hægt sé að byggja vandaðar og hagkvæmar íbúðir með sem hröðustum hætti. Þetta var á meðal þess sem fram kom í máli gesta á upphafsfundi þriggja ráðuneyta um hagkvæmar húsnæðislausnir sem haldinn var í gærmorgun undir yfirskriftinni „vandað, hagkvæmt, hratt.“ Samstaða var meðal fundarmanna um nauðsyn smærri og hagkvæmari íbúða. Mikil eftirspurn er eftir slíkum íbúðum, ekki aðeins hjá ungu fólki sem hefur hug á að leigja eða kaupa íbúð heldur einnig hjá eldra fólki sem vill minnka við sig.

Að upphafsfundinum stóðu ráðherrar húsnæðismála, umhverfismála og iðnaðar ásamt undirstofnunum og Samtökum iðnaðarins og mættu á þriðja hundrað manns sem flestir koma að byggingu húsnæðis á einhverju stigi. Fulltrúar sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja víða að af landinu sóttu fundinn.

Verkefnið „Vandað, hagkvæmt, hratt“ byggir á samþykkt ríkisstjórnarinnar um aðgerðir á sviði húsnæðismála, í tengslum við gerð kjarasamninga sl. vor. Meðal næstu áfanga í verkefninu er klasi á sviði byggingarlausna, arkitektasamkeppni og sýning á mjög hagkvæmum fullbyggðum íbúðum.

Nánari umfjöllun

mbl.is

visir.is

Viðskiptablaðið

Samstaða um nauðsyn smærri og hagkvæmari íbúða - Samtök Iðnaðarins