Beint í efni

Samtök iðnaðarins mótmæla aukinni skattheimtu

Samtök iðnaðarins mótmæla þeim tillögum Embættis landlæknis að auka skattheimtu á sykraða og ósykraða gosdrykki auk sælgætis.

Samtök iðnaðarins mótmæla aukinni skattheimtu

Samtök iðnaðarins mótmæla þeim tillögum Embættis landlæknis að auka skattheimtu á sykraða og ósykraða gosdrykki auk sælgætis til að draga úr sykurneyslu landsmanna.

Tillögurnar byggja á könnun sem gerð var á mataræði Íslendinga fyrir áratug. Það er ljóst að margt hefur breyst í mataræði landsmanna á þeim tíma sem liðinn er frá þeirri könnun. Markaðshlutdeild sykraðra gosdrykkja hefur stórlega dregist saman á síðustu árum um leið og markaðshlutdeild sykurlausra drykkja og vatns hefur aukist. Þessi þróun er einungis hluti af miklum breytingum á lífsháttum og matarvenjum landsmanna. Neytendur hafa í miklum mæli snúið sér að hollari valkosti. Það er því löngu tímabært að kannað verði að nýju hvernig matarvenjum landsmanna er háttað.

Sérstök skattlagning einstakra vöruflokka felur í sér mismunun og skerðir samkeppnisstöðu þeirrar greinar sem í hlut á. SI hafa ávallt barist fyrir jafnræði á markaði og að þar ríki almennar og einfaldar reglur. Benda má á að íslensk stjórnvöld hafa reynt hvoru tveggja, sértæka skattheimtu af stökum vöruflokkum og almenna skattlagningu á sykri í matvælum til að stýra neyslu almennings. Hvorugt hefur skilað þeim árangri sem að var stefnt og einungis haft í för með sér umtalsverðan kostnað og óhagræði sem hefur komið niður á bæði fyrirtækjum og almenningi.

Samtök iðnaðarins telja það fráleitt að taka aftur upp vörugjöld á matvæli með tilheyrandi kostnaði. Ekki aðeins hækkar það verð þeirra vara sem fyrir því verða heldur eykur það kostnað við kerfið sem slíkt sem á endanum kemur niður á samkeppnishæfni fyrirtækja og eykur kostnað neytenda og hins opinbera.

mbl.is, 25. júní 2019

Viðskiptablaðið, 25. júní 2019

Vísir, 25. júní 2019

Hringbraut, 25. júní 2019

Eyjan, 25. júní 2019

Samtök iðnaðarins mótmæla aukinni skattheimtu - Samtök Iðnaðarins