Fréttasafn



26. sep. 2017 Almennar fréttir

Skipulags- og áherslubreytingar í starfsemi Samtaka iðnaðarins

Framundan eru breytingar á skipulagi SI, sem hafa þann tilgang að styðja við nýjar áherslur í starfi samtakanna, styrkja starfsemi þeirra og veita félagsmönnum enn betri þjónustu. Breytingar hafa orðið á starfsliði SI vegna þessa.

Samhliða breytingunum mun nýtt fólk verða ráðið til starfa hjá samtökunum. Innan fárra daga verður auglýst eftir kraftmiklu fólki í valin störf og er þess að vænta að ráðið verði til starfa fólk sem deilir framtíðarsýn um öflugan iðnað í landinu.

Á næstu árum munu Samtök iðnaðarins leggja mesta áherslu á fjóra meginþætti, sem saman mynda undirstöður öflugs atvinnulífs og skipta því miklu máli fyrir iðnað á Íslandi og þannig samfélagið allt. Þetta eru menntun, nýsköpun, starfsumhverfi og innviðir.

Íslenskur iðnaður er ein af lykilforsendum velmegunar í landinu - útflutningsverðmæti iðnaðarins nema á fimmta hundrað milljörðum króna og tvær af fjórum meginstoðum íslensks útflutnings eiga rætur í iðnaði. Samtök iðnaðarins eiga að taka frumkvæði í mikilvægum málum sem varða iðnaðinn, en ekki eingöngu stunda hefðbundna hagsmunagæslu. Þær breytingar sem nú standa yfir eru liður í þeirri vinnu.